2026-03-29T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu.

Tónleikarnir eru samtals tíu talsins og ganga ýmsir píanóleikarar til liðs við Guðnýju, en þau Guðný og Bjarni Frímann ljúka maraþoninu á þessum tónleikum í nóvember.

Tónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12,500 eða staka miða á 3000.

Einnig býðst að bóka helgardögurð (brunch) með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr. 2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904.

25. NÓVEMBER:
Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason

Upplýsingar

Skipuleggjandi

Staðsetning

Go to Top