Hleð Viðburðir

Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu.

Tónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í febrúar leikur Anna Guðný Guðmundsdóttir með frænku sinni.

Tónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja.

Einnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904.

 

25. FEBRÚAR:  Píanóleikari: Anna Guðný Guðmunsdóttir

  • 25. MARS: Píanóleikari: Gerrit Schuil
  • 29. APRÍL:Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason
  • 24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen
  • 29. JÚLÍ: Píanóleikari: Gerrit Schuil
  • 26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté
  • 30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo
  • 28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm
  • 25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir