
Nýárstónleikar Snorra Ásmundssonar
08/01/2026 @ 20:00 - 21:30
Nýárstónleikar Snorra Ásmundssonar verða haldnir 8. janúar kl. 20:00 í Hannesarholti.
Snorri frumflytur ný verk ásamt því að rifja upp nokkur af sínum vinsælustu lögum. Á efnisskránni má einnig finna nokkur af kyngimögnuðustu tónverkum tónlistarsögunnar. Snorri er af mörgum verið talinn einn besti og frumlegasti píanóleikari heims og leikur hans við píanóið er töfrum líkastur.
Að auki heldur listamaðurinn upp á 25 ára edrúafmæli sitt þennan dag, og má því búast við einstaklega kraftmiklum tónum og jafnvel dansi.



