
Opnun myndlistarsýningar Daða Guðbjörnssonar: BJARTSÝNING Í HANNESARHOLTI
17. janúar @ 14:00 - 16:00
Daði Guðbjörnsson opnar málverkasýningu sína sem hann nefnir „Bjartsýning í Hannesarholti“ laugardaginn 17.janúar kl.14. Á Bjart-sýningunni er leitast við að nálgast tilveruna frá sjónarhóli tilfinninganna. Myndirnar fanga og miðla upplifun af innra og ytra formi tilverunnar og vonandi munu málverkin gleðja áhorfendur. Sýningin gefur gott yfirlit yfir það sem hefur verið að gerast á vinnustofu Daða síðustu tvö ár, en þar má finna bæði olíumálverk og vatnslitamyndir.
Daði hefur stundað málaralist sem aðalatvinnu alla ævi, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Verk eftir hann er að finna í eigu allra helstu listasafna landsins.
Sýningin er sölusýning og stendur til 4.febrúar 2026.
