Pálsvaka – heimspekispjall
21/04/2018 @ 10:00 - 16:30
Hvert er erindi umhverfisheimspekinnar við Íslendinga?
Pálsvaka er árlegur viðburður að vori í Hannesarholti í samstarfi við Siðfræðistofnun til að heiðra minningu Páls Skúlasonar heimspekings. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir umræður um málefni sem tengjast heimspeki og samfélagi.
Að þessu sinni er viðfangsefnið sá heimspeki- og siðfræðilegi skilningur sem liggur til grundvallar umgengni okkar við náttúruna og afstöðuna til hennar. Undanfarið hefur umræða um náttúruna, verndun hennar, nýtingu og merkingu aukist í samfélaginu. Mikilvægt er að sú umræða eigi sér traustar fræðilegar stoðir. Í verkum Páls má finna mikilvæga leiðsögn í þeim efnum.
Hvert er erindi umhverfisheimspekinnar við Íslendinga?
Ráðstefna í Hannesarholti, laugardaginn 21. apríl 2018, kl. 10.00-16.30
DAGSKRÁ:
10.00-10.10 Setning þings, fundarstjóri: Henry Alexander Henrysson
10.10-10.25 Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra
10.25-10.40 Að rækta eða glata samúðargáfunni – inngangserindi um náttúruhugsun Páls Skúlasonar: Jón Ásgeir Kalmansson
10.40-11.20 Fjölbreytni og tengsl í náttúrunni –mikilvægi heimsmyndar: Skúli Skúlason
11.20-12.00 Samvistarhyggja – heimspekileg hugleiðing um guði, mannfólk og dýr:
Róbert H. Haraldsson
12.00-13.00 HÁDEGISVERÐUR
13.00-13.40 Brjáluð auðn–um táknmyndir, tengsl og trúnað í náttúrupælingum meistara Páls og lærisveina: Oddný Eir Ævarsdóttir
13.40-14.20 Fyrirbærafræði og fagurfræði umhverfis og náttúru (eða landslags): Guðbjörg R. Jóhannesdóttir
14.20-15.00 Græn stjórnmál, gráa höndin og landslag umhverfismála á Íslandi: Þorvarður Árnason
15.00-15.20 KAFFIHLÉ
15.20-16.20 Pallborðsumræður, þátttakendur: Árni Finnsson, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Einar Jónsson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Ólafur Páll Jónsson og Stefán Gíslason. Stjórnandi pallborðsumræðna: Salvör Nordal
16.20-16.30 Lokaorð: Mikael Karlsson