Hleð Viðburðir

Miðvikudagana 2.  9. 16. og 23. október kl. 16:00 – 18:00 stendur styrktarfélagið Göngum saman fyrir prjónakaffi í Hannesarholti. Þar gefst félögum og öðrum velunnurum tækifæri á að hittast og prjóna saman húfur til styrktar Göngum saman.

Fjallaverksmiðja Íslands (https://www.facebook.com/IcelandMountainFactory) leggur til hönnun og verksmiðjustúlkur aðstoða og mæta með uppskriftir. Ístex styrkir verkefnið með lopa en prjónendur þurfa að taka með sér 40 cm. hringprjóna nr. 4-5 og sokkaprjóna.

Fjallkonubrjóstin verða svo seld og fer allur ágóðinn í styrktarsjóð Göngum saman.

Upplýsingar

Dagsetn:
09/10/2013
Tími:
16:00 - 18:00
Vefsíða:
www.gongumsaman.is