2026-02-28T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Ragnheiður Gröndal kemur fram ásamt Guðmundi Péturssyni og Birgi Steini Theodórssyni á síðdegistónleikum í Hannesarholti 11. október. Tríóið hefur leikið mikið saman síðast liðin ár í alls konar samhengi.

Uppistaða tónleikanna verður nýtt efni – í bland við eldra efni og djasslög sem eru í uppáhaldi. Ragnheiður hefur undanfarin misseri unnið í nýrri tónlist á íslensku, og er hugmyndin með þessum tónleikum að bjóða tónleikagestum inn í vinnuferlið. Þannig fá áheyrendur tækifæri til að kynnast nýjum lögum og heyra þau í lifandi flutningi áður en þau koma út.

Tónleikarnir hefjast kl. 16 og eru rúmur klukkutími.

Ragnheiður Gröndal – söngur og píanó
Guðmundur Pétursson – gítar
Birgir Steinn Theodórsson – bassi

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top