Hleð Viðburðir
Event Series Event Series: SIGVALDI KALDALÓNS Í HANNESARHOLTI

Saga Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti.

Tónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans.

Leikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á senuna. Búast má við að margir fagni endurfundum og nýjum fundum við okkar ástkæra tónskáld Sigvalda Kaldalóns í þessari umtöluðu sýningu. Síðasta sýning í Hannesarholti sunnudaginn 4.nóvember kl.16. Eftir það fer sýningin á heimaslóðir til vestfjarða.

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Hljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir

Leikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson

Miðaverð: 4000 kr, miðasala á tix.is

Upplýsingar

Dagsetn:
30/10/2018
Tími:
20:00 - 21:30
Series:
Viðburður Category:

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904