Hleð Viðburðir

Slóðir

Leiðin út í víðáttuna, óræðan fjarskann þar sem himinn og jörð verða eitt, er leið hugans til rósemdar og hvíldar í algerri kyrrð. Jafnframt er hún leiðin heim – stundum ógreinileg, stundum vörðuð eftir fyrri ferðir eða gengnar kynslóðir, því öllum er nauðsyn að finna fegurðina í einverunni undir stórum himni – að fara þessa ferð.

Fetum okkur eftir þessari slóð uns við finnum okkar griðastað – kannski grónum haga, kannski blásnum mel og hittum okku sjálf fyrir.

Öruggum strokum leiðir listamaðurinn okkar á þessar heillandi slóðir þar sem náttúran og tíminn ríkja. Þangað leitum við griða.

Því listin heldur áfram að gefa svo lengi sem við kjósum að þiggja.

Sýningin er sölusýning og stendur yfir til 27.08.24

Upplýsingar

Dagsetn:
8. ágúst
Tími:
15:00 - 17:00
Viðburður Categories:
,

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map