2026-02-08T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Jólahugvekja Þráins

Í liðlega klukkustund ætlar Þráinn Árni Baldvinsson, tónlistarkennari og gítarleikari Skálmaldar, að stjórna jólahugvekju með söng, spili og sögum.

Stemmningin verður afslöppuð og allir velkomnir að syngja með og taka þátt í að skapa einstaka jólastemmningu.

Þráinn Árni starfar nú sem tónmenntakennari við Norðlingaskóla milli þess sem hann  ferðast um heiminn með hljómsveit. Hann hefur leikið inn á fjölmargar hljómplötur hér heima og ásamt því að spila með mörgum af okkar þekktustu og bestu listamönnum hefur hann einnig leikið með hinum heimsþekkta Bruce Kulick (Kiss).

Aðgangur kr. 1000.-

Frítt fyrir börn.

 

Upplýsingar

Skipuleggjandi

Staðsetning

Go to Top