2026-05-30T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Tónlistarkonan Sunna Guðlaugsdóttir býður til tónleika í Hannesarholti. Á efnisskránni eru frumsamin lög, sögur og spjall. Þessi kvöldstund verður laus við allan hátíðleika og formlegheit, en áheyrendum er boðið að stíga inn í líflegan hugarheim Sunnu. Lögin sem flutt verða fjalla um allt frá ást og söknuði til útbreiðslu lúpínunnar á Íslandi. Tónleikarnir verða í besta „spillemands“-anda, þar sem nálægð við áhorfendur og notaleg stemning er í fyrirrúmi.

Sunnu til halds og trausts verður Haukur Þórðarson á gítar.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top