Hleð Viðburðir

Söngstund fyrir almenning, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Bræðrasynirnir Jóhann Vilhjálmsson og Gunnar Kr. Sigurjónsson stjórna söngstundinni af alkunnri snilld. Jóhann hefur verið í kórum allt frá blautu barnsbeini og Gunnar hefur spilað á hljómborð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina, jafnframt því að sinna útgáfustarfsemi og sýna töfrabrögð ýmiskonar. Börn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr. Veitingahúsið á hæðinni fyrir ofan er opið frá 11-17 fyrir helgarbröns, kaffi, kökur og meðlæti.

Hér er upptaka frá söngstund þeirra frænda síðastliðið haust í Hljóðbergi:

https://www.facebook.com/Hannesarholt/videos/1635041436570407/