Syngjum saman
18/09/2016 @ 15:00
| kr.1000Tónlistarhjónin Þóra Marteinsdóttir og Gunnar Ben stjórna klukkustundarlangri söngstund fyrir almenning, þar sem textar birtast á tjaldi og allir syngja með.
Gunnar og Þóra hafa bæði verið viðloðandi kórstarf og tónlistarkennslu í mörg ár. Í dag starfar Þóra sem tónlistarkennari, barnakórstjóri og tónskáld. Gunnar er fagstjóri skapandi tónlistarmiðlunar í Listaháskóla Íslands ásamt því að stjórna nokkrum kórum og spila þungarokk. Þau hafa bæði afskaplega gaman af því að syngja.
Hannesarholt vill hlúa að sönghefð þjóðarinnar og stendur fyrir söngstund að jafnaði einu sinni í mánuði. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum.