Hleð Viðburðir

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks.  Fyrsta söngstund haustannar verður haldin sunnudaginn 14.september kl.16, og mun Kristín Valsdóttir, tónmenntakennari  og deildarforseti listkennsludeildar LHÍ leiða sönginn í um klukkustund með fulltingi Þorvaldar Davíðssonar tónsmíðanema sem leikur undir á píanó. Eins og venja er til munu textar birtast á skjá.

Veitingahúsið verður opið á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.

Hér má sjá myndband frá fyrstu söngstundinni: http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4

 

Upplýsingar

Dagsetn:
14/09/2014
Tími:
16:00 - 17:00
Verð:
ISK1.000
Viðburður Category:

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hljóðberg