Hleð Viðburðir

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks. Tónmenntakennararnir Ragnheiður Haraldsdóttir og Þórunn Björnsdóttir munu leiða sönginn í um klukkustund og textar birtast á skjá eins og venja er til. Aðgangseyrir er  kr.1000.

Veitingahúsið verður opið á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.

Hér má sjá myndband frá fyrstu söngstundinni: http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4

Upplýsingar

Dagsetn:
23/11/2014
Tími:
16:00 - 17:00
Verð:
ISK1000
Viðburður Category:

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hljóðberg