Hleð Viðburðir

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks.  Björgvin Þ.Valdimarsson tónskáld og tónlistarkennari leiðir söngstundina sunnudaginn 13.mars kl.15. Eins og venja er til munu textar birtast á skjá.

Veitingahúsið verður opið á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.

Hér má sjá myndband frá fyrstu söngstundinni: http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4

Upplýsingar

Dagsetn:
13/03/2016
Tími:
15:00
Verð:
kr.1000
Viðburður Category:
Tök Viðburður:
, , ,
Vefsíða:
https://midi.is/event/1/9456/Syngjum_saman

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hljóðberg