Hleð Viðburðir

Hannesarholt hefur hlúð að söngarfinum síðastliðin sjö ár með því að bjóða uppá Syngjum saman undir stjórn fagfólks í Hljóðbergi, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Nú breytum við um stíl í samkomubanninu og streymum Syngjum saman beint á fésbókarsíðu Hannesarholti balla sunnudaga kl.14. Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson stjórna söngstundinni í beinu streymi frá Hannesarholti sunnudaginn 5.apríl kl.14. Á efnisskránni verða íslensk sönglög, sálmar og ýmis lög sem Ellen hefur sungið á ferli sínum og allir geta tekið undir heima hjá sér eða hvar sem þeir geta notið.

Ellen Kristjánsdóttur söngkonu þekkja flesti Íslendingar. Á löngum og litríkum ferli hefur hún sungið fjölda laga sem lifa með þjóðinni. Samstarf hennar við Magnús Eiríksson og Mannakorn hefur verið sérlega árangusríkt en auk þess hefur hún m.a. gefið út 6 diska í eigin nafni og 2 diska með bróður sínum, Kristjáni. Diskur hennar, Sálmar, hlaut íslensku tónlistarverðlaunin árið 2004.

Eyþór Gunnarsson píanó- og hljómborðsleikari kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Mezzoforte, sem hann stofnaði ásamt félögum sínum árið 1977. Sveitin starfar enn við góðan orðstír og spilar árlega víða um heim. Eyþór hefur auk þess verið afkastamikill í íslensku tónlistarlífi, hefur tekið þátt í fjölda tónleika og gerð u.þ.b 200 hljómdiska með mörgum af þekktustu listamönnum þjóðarinnar.

Upplýsingar

Dagsetn:
05/04/2020
Tími:
14:00 - 15:00
Viðburður Categories:
,

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904