2026-01-30T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Syngjum saman með Hörpu Þorvalds í beinni frá Hannesarholti sunnudaginn 29. mars 2020 kl.14.

Hannesarholt hefur síðastliðin sjö ár hlúð að sönghefð íslendinga og boðið upp á klukkustundar fjöldasöng, þar sem textar birtast á tjaldi, allir taka undir og tónlistarmaður leiðir sönginn. Í vetur hefur samsöngurinn verið haldinn annan hvern sunnudag, en nú freistum við þess að gjóða uppá samsöng í streymi alla sunnudaga kl.14. Fólk getur tekið þátt og notið heimanfrá sér með því að fylgjast með streymi í beinni á fésbókarsíðu Hannesarholts.

Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og tónmenntakennari leiðir stundina þennan sunnudaginn, en hún heldur jafnframt utan um söngstundirnar í vetur. Hún er kórstjóri í Laugarnesskóla í Reykjavík og sér meðal annars um morgunsöng þar á hverjum morgni auk vikulegrar samsöngsstundar á Hrafnistu í Reykjavík. Söngurinn er henni mikið hjartans mál, sem sameinar kynslóðir, varðveitir tungumálið og hressir bætir og kætir. Hún er einnig meðlimur hljómsveitarinnar Brek, sem nýlega hélt sína fyrstu tónleika.

Upplýsingar

Staðsetning

  • Grundarstígur 10
    Reykjavík, 101 Iceland
    + Google Map
  • Phone 5111904
Go to Top