Hleð Viðburðir

Syngjum saman í Hannesarholti verður í höndum Benna Sig og Sveins Arnar Sæmundssonar laugardaginn 9.mars kl.14. Benni (Benedikt Sigurðsson) hefur m.a stýrt skemmtanahaldi í skíðaskálanum í Hveradölum sl. 3-4 ár við góðan orðstýr og stýrir samsöng í hverri víku bæði í Garðabæ , HFJ og víðar. Sveinn Arnar er organisti í Víðistaðakirkju og er í allskyns verkefnum tengt tónlist.

Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-2024 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með dóttur sinni þar til að heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, en hún lést 11.júlí síðastliðinn. Frítt er inná Syngjum saman í Hannesarholti í minningu hennar, sem er haldið reglulega annan hvern laugardag kl.14. Textar á tjaldi svo allir geta sungið með. Allar kynslóðir velkomnar.

 

Hannesarholts merkið