Hleð Viðburðir

Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 10.júní kl.14 með Björgu Birgisdóttur og Jóni Elíssyni. Textar á tjaldi svo allir geti tekið undir, ungir sem aldnir.

Björg Birgisdóttir hóf Söngnám við söngskólann Domus Vox, lauk einsöngvaraprófi við Söngskólann í Reykjavík, og eftir einn vetur við Söngskóla Sigurðar Demetz tók við framhaldsnám í Vínarborg. Björg hefur komið fram sem söngkona við ýmis tækifæri, bæði hérlendis og víðar í Evrópu.

Jón Elísson lærði píanóleik hjá Guðrúnu Frímannsdóttur við Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Hann hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarmanna víða um heim.

Björg og Jón starfa nú saman í Sönghúsi Domus Vox hjá Margréti Pálmadóttur og njóta þess að miðla til upprennandi nýs tónlistarfólks.

Enginn aðgangseyrir.

Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá kl.11.30-16.00

Upplýsingar

Dagsetn:
10/06/2023
Tími:
14:00 - 15:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map