

Syngjum saman í Hannesarholti með Hörpu Þorvalds
22. febrúar @ 14:00 - 15:00
Harpa Þorvalds stýrir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 22. febrúar kl.14:00
Harpa er verkefnastjóri list- og menningartengdra verkefna á Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar og stýrir þar á meðal verkefninu Syngjandi skóli og stendur fyrir árlegum samsöng í öllum leik- og grunnskólum landsins á Degi íslenskrar tónlistar. Áður starfaði hún sem tónmenntakennari og kórstjóri við Laugarnesskóla í Reykjavík. Auk þess hefur Harpa stjórnað vikulegum söngstundum á Hrafnistu frá árinu 2018, haldið utan um viðburðinn Syngjum saman í Hannesarholti á árum áður og er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Brek.
Textar á tjaldi svo allir geti sungið með. Allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn