Hleð Viðburðir

Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 11.mars kl.14 2023 með frændunum Jóhanni Vilhjálmssyni og Gunnari Kr. Sigurjónssyni. Þeir eru gestum Hannesarholts að góðu kunnir, enda hafa þeir stjórnað söngstundinni áður af mikilli snilld. Þeir bræðrasynir ólust upp við tóna systkinanna Ellyjar og Vilhjálms, enda var Vilhjálmur faðir Jóhanns og Elly föðursystir þeirra beggja. Jóhann hefur verið í kórum allt frá blautu barnsbeini og Gunnar hefur spilað á hljómborð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina, jafnframt því að sinna útgáfustarfsemi og sýna töfrabrögð ýmiskonar.

Textar birtast á tjaldi eins og venja er og allir taka undir. Frítt fyrir gesti og streymt verður frá stundinni fyrir þá sem ekki komast og hina sem vilja halda áfram að njóta samsöngsins aftur og aftur

Upplýsingar

Dagsetn:
11/03/2023
Tími:
14:00 - 15:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map