
Syngjum saman í Hannesarholti með Kristjönu, Gróu og Gaflarakórnum
21. febrúar @ 14:00 - 15:00
Syngjum saman í Hannesarholti er í höndum gesta úr Hafnarfirði laugardaginn 21.febrúar kl.14. Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir leiðir sönginn og Gróa Hreinsdóttir leikur með á flygilinn. Félagar úr Gaflarakórnum, kórs félags eldri borgara í Hafnarfirði, verða þeim til fulltingis, en Kristjana er stjórnandi kórsins.
Allar kynslóðir velkomnar að mæta og syngja með. Textar á tjaldi og frítt inn. Streymt verður frá söngstundinni.
