Hleð Viðburðir

Syngjum saman í Hannesarholti er stýrt af vinahópnum Skotfjelaginu laugardaginn 11.nóvember kl.14. Vinahópurinn sem samanstendur af einstaklega söngvinnu fólki kórsystrum úr kórstarfi Margrétar Pálmadóttur og mökum þeirra, hefur áður glatt gesti Hannesarholt í Syngjum saman.

Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-2024 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með mér þar til heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum, viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, þar til hún lést 11.júlí síðastliðinn. Frítt er inná Syngjum saman í minningu hennar í vetur, textar á tjaldi og allir geta sungið með. Allar kynslóðir velkomnar.

Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá 11:30-16:00 alla daga nema sunnudaga og mánudaga.