Hleð Viðburðir

Þórunn Björnsdóttir stýrir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 20.apríl kl.14. Tóta Björns, eins og hún er oftast kölluð, stýrði kórstarfi í Kársnesskóla í yfir fjörtíu ár og var öflug í uppbyggingu barnakórastarfs á Íslandi. Með henni í Hannesarholti verða eldri borgarar úr Kópavogi, sem Tóta leiðir í söng einu sinni í viku í vetur.

Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-2024 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með dóttur sinni þar til að heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, en hún lést 11.júlí síðastliðinn 2023. Frítt er inná Syngjum saman í Hannesarholti í hennar minningu.