
Syngjum saman með feðgunum Pálmari og Hrafnkeli
21. mars @ 14:00 - 15:00
Það er píanistinn Pálmar Ólason og Hrafnkell Pálmarsson sem stjórna í Syngjum saman. Pálmar á að baki blómlegan feril með helstu dægurlagasveitum Íslands, og lék m.a. með Ellý Vilhjálms og Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Pálmar var píanóleikari Lækjarbrekku um áraskeið, verið fastur gestur við píanóið á Íslenska barnum. Hrafnkell er tónskáld og tónlistarmaður og er meðlimur hljómsveitarinnar Í svörtum fötum.

