Hleð Viðburðir

Þjóðlagasveitin Þula er skipuð 8 ungmennum á aldrinum 16-18 ára á efri stigum náms við Tónlistarskóla Kópavogs. Þula er eina þjóðlagasveitin sinnar tegundar þar sem ungmenni iðka flutning á íslenskri þjóðlagatónlist með söng, hljóðfæraleik og dansi sér og öðrum til gleði. Þjóðlagasveitin hefur þegar komið víða við, þar á meðal tók Þula þátt í alþjóðlegu þjóðlagahátíðinni Moonlight á Spáni sumarið 2017, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 2016, í Nótunni í Eldborg Hörpu 2016, í Hofi á Akureyri, Barnamenningarhátíð í Reykjavík og Kópavogi, Ormadögum í Kópavogi og víðar. Hópurinn hefur einnig leitt vinnustofu í þjóðlagatónlist á norrænu þjóðdansa- og þjóðlagamóti í Mosfellsbæ og tekið á móti þjóðlagahópi barna frá Kólumbíu.

Þula hefur verið valin til þátttöku í alþjóðlegri listahátíð ungmenna í borginni Tianjin í Kína 26.-31. júlí. Það er mikill heiður að vera valin til þátttöku í hátíðinni, en þetta er í annað sinn sem Kínversk-íslenska menningarfélagið hefur milligöngu um að senda íslenska fulltrúa á hátíðina. Listahátíðin í Tianjin er hátíð sem haldin er sameiginlega af Kínverska þjóðarráðinu er vinnur að vináttusamböndum við erlend ríki, Kínverska menningarráðinu og borgarstjórn Tianjin borgar, en þema hátíðarinnar er friður, vinátta og framtíð. Hátíðin er gríðar stór og gert ráð fyrir þátttakendum frá allt að 100 löndum.

Þulu skipa:

Anna Margrét Jónudóttir – fiðla, söngur, dans

Hekla Martinsdóttir Kollmar – fiðla, söngur

Sóley Lúsía Jónsdóttir – fiðla, söngur, dans

Guðrún Vala Matthíasdóttir – flauta, söngur, dans

Kristjana Ólöf Árnadóttir – flauta, söngur, dans

Jónína Matthíasdóttir – flauta, söngur, dans

Elvar Bjarnason – selló, söngur, dans

Dagur Bjarnason – kontrabassi, söngur, dans

stjórnandi: Eydís Franzdóttir og

aðstoðarstjórnandi: Pamela De Sensi

Hægt er að kynnast Þulu betur á Facebook Þjóðlagasveitarinnar Þulu eða á myndbandi frá tónleikum sveitarinnar :