ÞRÆLAR AFRÍSK – AMERÍSKIR VINNUSÖNGVAR
02/02/2019 @ 20:00 - 21:30
Guðrún Ösp Sævarsdóttir mezzósópran og Helga Kvam Píanóleikari flytja rótgróna vinnusöngva frá tímum þrælahalds við útsetningar Harry T. Burleigh.
Burleigh var afrísk-amerískur og ólst upp í Pennsylvaníu. Hann hafði alla tíð dálæti á tónlist en vegna fátæktar gat hann ekki farið í nám fyrr en 1892 þegar honum var veittur skólastyrkur.
Burleigh útskrifaðist úr National Conservatory í tónsmíðum og klassískum söng. Hann var þekktur fyrir sína fögru baritón rödd og söng í 50 ár í sama kirkjukórnum.
Alla skólagönguna vann hann fyrir sér með þrifum í skólanum og raulaði sér til yndis gömlu vinnusöngvana sem afi hans (sem var fyrrum þræll) kenndi honum. Antonín Dvorák var einn af starfsmönnum skólans og heillaðist af tónunum. Dvorák hvatti hann til að útsetja söngvana sem leiddi til þess að Burleigh varð fyrstur hörundslitaðra manna til að gefa út fallegu gömlu söngvana fyrir klassískan söng.
Burleigh var mikill brautryðjandi í að brúa bilið á milli hörundslitaðra og hvítra manna og samdi ótal verk. Hann vann meðal annars til verðlauna fyrir söngvana sem sungnir verða á tónleikunum.
Stöllurnar Guðrún Ösp mezzo sópran og Helga Kvam koma frá höfuðstað norðurlands. Þær fluttu verk Burleigh í Menningarhúsinu Hofi í nóvember síðastliðinn við mikið lof tónleikagesta.