„Tilviljun“ Ólöf Svava sýnir vatnslitamyndir í Hannesarholti
22/08/2015 @ 17:00
Ólöf Svava Guðmundsdóttir opnar sýningu á fjórtán vatnslitamyndum sem hún hefur málað á síðustu tveimur árum. Hrafnar þjóðlagasveit spilar nokkur lög í tilefni opnunarinnar.
Ólöf er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er útskrifaður leikskóla-og listgreinakennari og hefur unnið við skapandi starf og þróunarverkefni í leikskólum síðastliðin þrjátíu ár.
Ólöf segir vatnsliti hafa heillað sig alla tíð, vegna þess hve óútreiknanlegir og gegnsæir þeir eru, útkoman komi oft á óvart, sé allt að því tilviljun háð. Lagt er upp með hugmynd, augnablikið er gripið og svo er haldið áfram. „Vatnslitirnir eru uppspretta fjölmargra möguleika hvað varðar litanotkun, hugmyndir og áferð, sköpunarferlið er tilraunakennt, eins konar óvissuferð.“
Ólöf hefur tekið þátt í fjölmörgum námskeiðum í myndlist í gegnum tíðina, meðal annars í Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell og Ingibergi Magnússyni, einnig styttri námskeiðum hjá Bridget Woods og Rúnu Gísladóttur.