Hleð Viðburðir

Píanóleikarinn Agnar Már Magnússon ásamt Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni bassaleikara og Scott Maclemore trommuleikara.

Dagskrá tónleikanna verður tvískipt:

Fyrir hlé verða frumflutt 16 píanóverk eftir Agnar Má, sem nefnast Þræðir (nr.1-16). Þau voru gefin út á bók síðastliðið haust.

Eftir hlé koma Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari og Scott Maclemore trommuleikari og leika nýtt efni með Agnari af væntanlegum geisladiski, sem  kemur út í sumar hjá Dimmu. Tríóið mun taka efnið upp í næstu viku. 

Agnar Már Magnússon er meðal fremsku djasstónlistarmanna landsins. Eftir að hafa lokið burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH lauk Agnar námi frá Conservatorium van Amsterdam og einkanámi hjá Larry Goldings í New York.

Í New York komst Agnar í kynni við fleiri þekkta tónlistarmenn á sviði djassins en þau kynni leiddu m.a. til útgáfu fyrstageisladisks hans sem ber nafnið 01. Frá þeim tíma hefur Agnar ásamt öðrum tónlistarmönnum gefið út fjölda geisladiska til viðbótar. Agnar hefur margoft verið tilnefndur og tvisvar hlotið íslensku tónlistarverðlaunin.

Agnar skrifaði heila dagskrá fyrir stórsveit Reykjavíkur 2010 og var hún flutt á tónleikum það ár. Tvö verkanna voru tekin upp og gefin út 2011 á disknum HAK. Sá diskur hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem djassdiskur ársins.

Agnar hefur verið kennari við tónlistarskóla FÍH frá 2001. Hann hefur útskrifað fjölda nemenda og sá um að skrifa ritmíska píanóhlutann í aðalnámskrá tónlistarskólanna fyrir Menntamálaráðuneytið.

Auk þessa hefur Agnar á tónlistarferli sínum unnið til verðlauna, svo sem “Outstanding Musicianship Award” frá Berklee tónlistarháskólanum í Boston og komist í undanúrslit í Alþjóðlegu djass píanókeppninni Martial Solal í París haustið 2002. Hann hefur útsett lög fyrir geislaplötur og söngleiki, starfað með Stórstveit Reykjavíkur árum saman, leikið á tónleikum hérlendis sem erlendis, verið píanóleikari og annast tónlistarstjórn í leikhúsi. Agnar sá meðal annars u m tónlistina í Söngvaseið, Mary Poppins og Billy Elliot fyrir Borgarleikhúsið. Agnar starfar nú sem djasspíanisti en kennir jafnframt píanóleik við djassdeild Tónlistarskóla FÍH.

Agnar var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2010.

 

Upplýsingar

Dagsetn:
31/05/2016
Tími:
20:00
Verð:
kr.2500
Viðburður Category:
Tök Viðburður:
, ,

Staðsetning

1.hæð og Hljóðberg