Hleð Viðburðir

Bjarni Frímann Bjarnason og Pétur Björnsson  leika sónötur eftir Brahms í Hannesarholti laugardaginn 8.október. Á efnisskránni eru:

Sónata fyrir píanó og fiðlu nr 1 eftir Johannes Brahms op. 78

Sónata fyrir píanó og fiðlu nr. 2 eftir Johannes Brahms op. 100

Sónata fyrir píanó og fiðlu nr. 3 eftir Johannes Brahms op. 108

 

Pétur Björnsson er fæddur árið 1994. Hann útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík haustið 2015 en kennarar hans þar voru Guðný Guðmundsdóttir og Ari Þór Vilhjálmsson. Síðan hefur hann stundað nám við Tónlistarháskólann í Leipzig undir handleiðslu Elfu Rúnar Kristinsdóttur.

Pétur hefur verið varamaður með hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2012 og er  í strengjasveitinni Skark frá árinu 2013. Þá hefur hann leikið með ensembleKONTRASTE hljómsveitinni í Nürnberg og Caput kammersveitinni í Reykjavík. Í nemendahljómsveitum Tónlistarskóla Reykjavíkur, Ungsveit sinfóníunnar og háskólahljómsveitinni í Leipzig hefur Pétur gegnt starfi konsertmeistara. Sem sólisti hefur hann komið fram með Hljómsveit Tónlistarkólans í Reykjavík haustið 2014 er hann lék fiðlukonsert Antonin Dvorák og með Stradivari ensemble í Vancouver í febrúar 2016 er hann lék Rondo Cappricioso eftir Camille Saint-Saens. Að auki hefur Pétur sótt ýmis námskeið á Íslandi og erlendis og sótt masterclassa hjá tónlistarmönnum í fremstu röð. Þar má nefna Christian Tetzlaff, Ilya Gringolts, Carolin Widmann, Jorja Fleezanis, Philippe Graffin, Sergei Ostrovsky, Robert Rozek og Mariana Sirbu.

Bjarni Frímann Bjarnason fæddist í Reykjavík 1989. Hann lauk Bachelorprófi í fiðlu- og lágfiðluleik frá Listaháskóla Íslands árið 2009  þar sem kennarar hans voru Guðný Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson. Í kjölfarið nam hann vélaverkfræði við Háskóla Íslands og hljómsveitarstjórn við Hochschule für Musik “Hanns Eisler” í Berlín undir handleiðslu Fred Buttkewitz.

Bjarni Frímann hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands, CAPUT, Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóníulhjómsveit Unga Fólksins, Philharmonisches Orchester Frankfurt a.d. Oder og ýmsum smærri hópum. Hann hefur komið fram sem fiðlu- og lágfiðluleikari á fjölmörgum tónlistarhátíðum bæði innan lands sem utan. Þá hefur hann á seinni árum haslað sér völl sem undirleikari og hefur komið fram sem slíkur m.a. með Angeliku Kirchschlager í Konzerthaus í Vín, leikið fjórhent með Helmut Deutsch í Fílharmóníunni í Berlín og í Vínarborg.

Bjarni Frímann stýrði í haust sem leið flutningi á UR_, óperu Önnu Þorvaldsdóttur, við Óperuna í Osló, leikhúsin í Chur og Basel og mun á Listahátíð Í Reykjavík stýra óperunni í Hörpu.
Þá hefur hann á undanförnum misserum fengist við að skrifa tónlist í kvikmyndir og leikhús og er nýlokinn við tónlistarstjórnum í uppsetningu Þorleifs Arnar Þorleifssonar á Villiönd og Þjóðníðingi Ibsens fyrir Þjóleikhús Norðmanna í Osló.

Bjarni Frímann var útnefndur Bjartasta Vonin í flokki sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2015.

 

 

Upplýsingar

Dagsetn:
08/10/2016
Tími:
20:00
Verð:
kr.2000
Viðburður Category:
Vefsíða:
https://midi.is/tonleikar/1/9804/Sonotur_Brahms_fyrir_piano_og_fidlu

Staðsetning

Hljóðberg