Tónleikar – Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir
07/09/2014 @ 14:00 - 16:00
| FreeANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR er fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfar einnig sem píanóleikari við Tónlistarskólann í Reykjavík, en þar nam hún píanóleik hjá Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Margréti Eiríksdóttur. Fyrsti kennari hennar var Stefán Edelstein við Barnamúsíkskólann, en framhaldsnám stundaði hún við Guildhall School of Music í Lundúnum hjá James Gibb og Gordon Back. Hún kemur reglulega fram á Listahátíð, nú síðast á opnunartónleikunum 22. maí sl., þar sem hún lék í verkinu Pierrot Lunaire með Kammersveit Reykjavíkur, einnig lék hún heildarverk L.v. Beethoven fyrir piano og selló ásamt Sigurgeiri Agnarssyni. Hún er eftirsóttur meðleikari hljóðfæraleikara og söngvara og hefur þannig lagt drjúgan skerf til íslensks tónlistarlífs síðastliðna þrjá áratugi. Hún hefur hljóðritað um 30 geisladiska ýmist ein eða með öðrum listamönnum. Anna Guðný hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2009 sem flytjandi ársins og var einnig tilnefnd í ár.
SIGURGEIR AGNARSSON hefur gegnt stöðu aðstoðarleiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2003. Hann hóf nám á selló hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1984, þá átta ára gamall. Hann lauk síðar einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 og hélt til frekara náms hjá David Wells og Laurence Lesser við New England Conservatory of Music í Boston. Þaðan lauk hann bæði Bachelor of Music og Master of Music gráðum. Síðan lá leiðin til Þýskalands þar sem Sigurgeir lærði hjá Prof. Johannes Goritzki við Robert Schumann Tónlistarháskólann í Düsseldorf þar sem hann útskrifaðist með Konzertexamen árið 2002.
Allir eru velkomnir – enginn aðgangseyrir.