Hleð Viðburðir

Kvartett Einars Scheving leikur nú í fyrsta sinn í Hannesarholti, en kvartettinn skipa, auk Einars, sem leikur á trommur og slagverk, píanóleikarinn Eyþór Gunnarsson, saxafónleikarinn Óskar Guðjónsson og bassaleikarinn Skúli Sverrisson. Munu þeir leika nýtt efni Einars, í bland við lög af plötunum Intervals, Cycles og Land míns föður. Plöturnar hafa allar fengið frábæra dóma bæði hérlendis sem erlendis og hlaut Einar íslensku tónlistarverðlaunin fyrir tvær þeirra.

Gestir geta pantað léttan kvöldverð á undan tónleikum. Veitingastofurnar á 1.hæðinni opna kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904 og hannesarholt@hannesarholt.is