Tónleikar Notus tríó í Hannesarholti
13/09/2015 @ 15:00
| kr.2000Notus-tríó hefur starfað saman undanfarin 6 ár og samanstendur af Pamelu De Sensi þverflautu, Martin Frewer víólu og Ingunni Hildi Hauksdóttur píanó. Helsta hugðarefni tríósins er ný íslensk tónlist. Síðast lék tríóið á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í mars 2014 við góðar undirtektir áheyrenda og gagnrýnenda. Í september fer tríóið í 10 daga tónleikaferð til Bretlands og Ítalíu þar sem flutt verður aðallega ný íslensk tónlist, sem sérstaklega er samin fyrir tríóið. Einnig munu meðlimir tríósins vera með kynningu á íslenskri tónlist og tónlistarsögu, fyrir nemendur og kennara The Accademia Nazionale di Santa Cecilia í Róm. Ferðin er styrkt af Reykjavík Loftbrú og ÚTÓN.
EFNISSKRÁ
ELÍN GUNNLAUGSDÓTTIR (1965) Haustvísur-hugleiðing um þrjár stemmur fyrir flautu, víólu og píanó (2013-frumflutt 2013) Haustið líður óðum á – Fer um jörðu feigðarnótt – Laufið fýkur, lokast blóm
BÁRA GRÍMSDÓTTIR (1960) „Gangan langa“ fyrir flautu, víólu og píanó (2011-frumflutt 2013) Ljósmóðir – Móðir – Ættmóðir
STEINGRÍMUR ÞÓRHALLSON (1974) Trio (2015-frumflutningur)
Hlé
TATYANA NIKOLAYEVA (1924-1993) Tríó fyrir flautu, víólu og píanó op.18 (1958) Prelude: Moderato Scherzo: Presto Monologue (solo viola): Adagio Aria: Moderato Intermezzo: Moderato Pastorale: Andante Fantasy March: Tempo do marcia Finale: Allegro ma non troppo
MARTIN FREWER (1960) Revelation (2015-frumflutningur) Happiness – Deception – Discussion – Confusion – Cooperation
Elín Gunnlaugdóttir: Verkið Haustvísur var skrifað síðsumars og haustið 2013. Verkið skiptist í þrjá kafla og byggir hver þeirra á einni stemmu úr Silfurplötusafni Iðunnar. Heiti hvers kafla er dregið af vísunum sem oftast eru kveðnar við stemmurnar. Fyrsti kaflinn verksins ber heitið Haustið líður óðum á. Kaflinn er hægur, en í vísunum er fjallað um veðrabrigðin sem verða á haustin, sumarblíðan fer og kuldinn sem læðist að. Annar kaflinn ber heitið Fer um jörðu feigðarnótt. Kaflinn er hraður og ákveðinn. Vindurinn og kuldinn eira engu. Allt fölnar og deyr. Þriðji og seinasti kaflinn ber heitið Laufið þýtur lokast blóm. Verkið endar í sátt. Allt fölnar og deyr og við verðum að hlíta því. Vísa eftir Einar Bachmann sem oft er kveðin við stemmuna hljóðar svo: Laufið þýtur lokast blóm/leiðin þrýtur vinir./Glaður lít ég drottins dóm/ deyja hlýt sem hinir.
Bára Grímsdóttir: Verkið Gangan langa er tileinkað 3 konum úr Íslandssögunni sem allar gengu langar vegalengdir. Verkið er í 3 köflum – 1. Ljósmóðir, 2. Móðir, 3. Ættmóðir. 1. kafli vísar til Rósu Guðmundsdóttur (Skáld-Rósu) 1795-1855. Hún var yfirsetukona, lærði fræðin fyrst hjá móður sinni á unglingsaldri, en síðar hjá landlækni á Seltjarnarnesi, ein fyrsta konan sem vann ljósmóðureiðinn hér á landi. Hún flutti landshorna á milli. Starfinu og flutningunum fylgdu margar og langar göngur. Haustið 1855 hóf hún síðustu göngu sína frá Trékyllisvík og var ætlunin að fara suður Arnarvatnsheiði til Hafnafjarðar en hún veiktist á leiðinni og lést á Efra Núpi í Miðfirði og er grafin þar. 2. kafli vísar til Guðríðar Símonardóttur 1598- 1682. Hún fæddist í Vestmannaeyjum. Árið 1627 hertóku sjóræningjar um 400 íslendinga og fluttu þá nauðuga suður til Alsír og seldu í þrældóm. Guðríður og ungur sonur hennar voru ein af þeim. 9 árum síðar varð hún viðskila við son sinn er hún var leyst úr ánauð. Leiðin lá til Íslands, stefnan tekin norður, löng ganga gegnum Frakkland, sigling til Kaupmannahafnar þar sem sem hún hitti Hallgrím Péturson sem varð svo eiginmaður hennar. 3. kafli vísar til Guðríðar Þorbjarnardóttur (980-1050), konu Leif heppna Eiríksonar. Hún var landkönnuður og ein víðförlasta kona miðalda. Hún fæddist á Ísland, bjó einnig á Grænlandi og Vínlandi. Talið er að hún sé fyrsta Evrópska konan sem fæddi barn í Ameríku. Sögur herma að hún hafi siglt átta sinnum yfir úthöf og gengið píslagöngu yfir þvera Evrópu til Rómar. Guðríður hefur oft verið nefnd “ ættmóðirin“. Má heyra drifkraftinn í lífi hennar í tónlistinni. Steingrímur Þórhallson: Notus tríóið bað mig um að semja verk fyrir tónleikaferð þeirra til Bretlands og Ítalíu og upp úr því varð til þetta verk sem er í tveimur hlutum. Sá fyrri er nokkuð dökkur og hugsaður sem átakalítil tónlist í lauslegu passacagliu formi þar sem laglínuhljóðfærin skiptast á að skreyta bassalínuna en fá aldrei að spila hana sjálf. Síðari hlutinn er hálfgert scherzo, léttleikandi og byggist mikið upp á tvíundum og nokkuð ómstríðu samspili sólóraddanna.
Tatjana Nikolayeva fæddist í Rússlandi 1924 og var listamaður af guðs náð, stórkostlegur píanóleikari en einnig mikilsvirtur kennari og tónskáld. Afar minnisstæðir eru tónleikar hennar í Gamla Bíói árið 1992, þar sem hún lék m.a. 24 preludiur og fúgur eftir sinn góða vin, D. Shostakovich, sem á sínum tíma hafði valið hana til af frumflytja verkið. Þekktasta upptaka með leik hennar er sögð vera píanó-umritun hennar sjálfrar á Pétri og úlfinum eftir Prokofiev. Tríóið op. 18 samanstendur af átta yndislega hugmyndaríkum smámyndum. Hver og einn kafli er stuttur en ber sterkan og bragðmikinn karakter. Ekki er vitað til þess að tríóið hafi verið flutt áður hér á landi.
Martin Frewer: Verkið Revelation er samið í byrjun árs 2015. Verkið er í 5. köflum og vísar Martin í íslenska þjóðlagaarfinn með hljómsetningu og rythmískum hugmyndum ásamt vísun í þjóðlögin Látum af hárri heiðurbrún, Gefðu að móðurmálið mitt og Kindur jarma í korfunum.
Upplýsingar
- Dagsetn:
- 13/09/2015
- Tími:
-
15:00
- Verð:
- kr.2000
- Viðburður Category:
- Tónleikar (Concerts)
- Tök Viðburður:
- Bára Grímsdóttir, Elín Gunnlaugsdóttir, flute, Ingunn Hildur Hauksdóttir píanó, Martin Frewer víóla, New Icelandic Music, Notus tríó, ný íslensk tónlist, Pamela De Sensi þverflauta, piano, Steingrímur Þórhallsson, Tatyana Nokolayeva, viola
- Vefsíða:
- http://midi.is/concerts/1/9161/Notus_Trio