

Tu Ha? Tu Bjö!
15. febrúar @ 20:00 - 21:30
Tu Ha? Tu Bjö! kemur fram í Hannesarholti í aðdraganda að upptökum á fyrstu hljómplötu sveitarinnar! Nýtt efni í bland við gamla slagara. Villt sköpunargleði og tilraunastarf sem verður fangað á segulband sléttri viku síðar. Kvöld sem enginn menningarspekúlant ætti að láta fram hjá sér fara.
Tu Ha? Tu Bjö! er kvartett sem mætti skilgreina sem eins konar „tvöfalt dúó“ og hefur verið starfandi með hléum í nokkur ár. Hann leikur einungis frumsamin verk eftir meðlimi og kannar líkindi tveggja blásturshljóðfæra en varpar jafnframt ljósi á sérstöðu fjögurra flytjanda. Hið sameiginlega og hið ólíka verða tvær hliðar sama penings. Liðsmenn flétta tónsmíðar sínar saman við frjálsan spuna. Kosmós við kaós. Tu Ha? Tu Bjö!
Tumi Torfason : trompet
Hannes Arason : trompet
Tumi Árnason : saxófónn
Björgvin Ragnar Hjálmarsson : saxófónn