Hleð Viðburðir

Rómantísk Parísarstemning!

Bergljót Arnalds söngkona, Birgir Þórisson píanóleikari, Margrét Arnar harmónikkuleikari skapa Parísarstemningu þann 2. mars næstkomandi. Kveikt verður á kertaljósum kl. 20:00 og áhorfendur fá að hlýða á gullfalleg lög sem Edith Piaf, Jacques Brel, Josepth Kosma og Charles Aznavour hafa gert fræg. Tónleikarnir eru fyrir alla þá sem vilja upplifa ljúfa tóna frá borg ástarinnar og hverfa þangað eina kvöldstund.

Hannesarholt býður upp á 2 fyrir 1 þetta kvöld af þriggja rétta matseðli fyrir þá sem vilja nota tækifærið og fara út að borða í leiðinni.

Á matseðli er:

Bökuð gulrót með gráðosti og pekan hnetum
Pönnusteikt langa með epli, basil tómötum, kartöflum og karrýsósu
og frönsk súkkulaðikaka með rjóma
eða bökuð ostakaka með hindberjasósu

7.900,- fyrir tvo.

Fyrir þá sem vilja eitthvað minna, þá er í boði frönsk súkkulaðikaka með rjóma í tilefni dagsins á 950.

Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is

Bergljót Arnalds söngkona og leikari hefur komið fram á fjölda tónleika bæði hérlendis og erlendis. Fyrir rúmu ári gaf hún út sinn fyrsta sólódisk „Heart Beat“ en áður hafði hún samið 35 lög fyrir tónlistardiskinn „Stafakarlarnir. Bergljót hlaut AUÐAR-verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf og nýsköpun þegar hún gaf út fyrsta íslenska margmiðlunardiskinn. Bergljót bjó um tíma í París og Austur-Kongó. Hún er með gullfallega rödd og syngur á frönsku á tónleikunum.

Birgir Þórisson píanóleikari hefur tekið þátt í fjölda tónleika, spilað bæði í áhugaleikhúsum og atvinnuleikhúsum, böllum og spilað inná upptökur. Hann hefur haft það að markmiði sínu að spila sem fjölbreyttasta tónlist og hefur tekið þátt í mörgum mjög ólíkum verkefnum, allt frá klassík yfir í jazz og popp. Hann hefur stjórnað tónlist í leiksýningum og söngvakeppnum og fer liprum höndum um Steinway flygilinn í Hannesarholti á tónleikunum „Undir Parísarhimni“.

Margrét Arnar hefur komið víða við og finnst gaman að víkka út rammann í harmonikkuspili Meðal verkefna sem hún hefur tekið þátt í eru Edith Piaf tónleikar í Hörpu og Spaðadrottningar Bubba Morthens. Margrét er velkunnug leikhúsinu og hefur meðal annars tekið þátt í sýningum í Tjarnarbíói. Hún hefur einnig spilað með hljómsveitinni Prins Póló. Harmónikkuleikur Margrétar gefur tónleikunum „Undir Parísarhimni“ enn meiri Parísarblæ enda má oft heyra skemmtilegan harmónikkuleik á götum Parísarborgar.

Upplýsingar

Dagsetn:
21/03/2019
Tími:
20:00 - 21:30
Viðburður Category:

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904