Undir súðinni – opnun
06/02/2016 @ 15:00
Listahópurinn ARKIR hefur starfað allt frá árinu 1998 en meðlimir hópsins sinna öllu jafna margvíslegri listsköpun á sviði málara- og grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar. Frá árinu 2005 hafa ARKIR hafa haldið fjölda bókverkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis.
Verk á sýningunni í Hannesarholti eiga Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Bryndís Bragadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Jóhanna M. Tryggvadóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir.