Undrabörn og tónskáld – Mozart og Liszt
17/09/2016 @ 13:30
| kr.2500Tónleikar og fyrirlestur
Tónleikafyrirlestur með Önnu Málfríður Sigurðardóttur píanóleikara verður haldinn í Hannesarholti laugardaginn 17. september kl: 13:30.
Anna Málfríður mun fjalla um tónskáldin Mozart og Liszt og einnig um verkin sem leikin verða. Tónleikarnir hefjast kl. 13:30 og eru rúmlega einn og hálfur tími með hléi.
Skoðað verður m.a. hvað þessi tónskáld áttu sameiginlegt þó að yfir 50 ár skildi þau að í tíma og hvernig ferðalög og kynni af öðrum tónskáldum og verkum þeirra höfðu áhrif á þeirra eigin tónsmíðar.
Á efnisskrá verða einungis verk eftir Mozart og Liszt , þ.á.m. hin þekkta sónata Mozarts sem oft er nefnd „Alla Turca“ og þrjár Petrarca Sonnettur eftir Liszt , sem hann umskrifaði eftir samnefndum sönglögum sínum og eru samin við texta eftir ítalska skáldið Francesco Petrarca. Auk þess verða á efnisskránni Fantasían í d moll eftir Mozart og Waldesrauschen eftir Liszt.
Miðaverð 2.500 krónur og fyrir eldri borgara, öryrkja og nema krónur 2.000. Síðari fyrirlestur / tónleikar, Eftirlætis ljóðasönvar, sem hún heldur með Sólrúnu Bragadóttur söngkonu, eru 19. nóvember.