Hleð Viðburðir

Ljóðasafn Hjartar Pálssonar kemur út sunnudaginn 5. júní, á 75 ára afmæli skáldsins. Af því tilefni er efnt til fagnaðar í skáldhúsinu Hannesarholti við Grundarstíg milli kl. 16 og 18 þar sem bókin verður kynnt með léttum upplestri, tónlistarflutningi og veitingum.

Hjörtur Pálsson gaf út fyrstu ljóðabók sína, Dynfaravísur, árið 1972. Í LJÓÐASAFNINU eru allar útgefnar ljóðabækur hans, fimm talsins, auk verðlaunaljóðsins Nótt frá Svignaskarði sem út kom sérprentað og ennfremur ný bók, Ísleysur, með ljóðum frá síðustu tveimur áratugum. Hjörtur er margverðlaunað skáld og þýðandi sem hefur afbragðs tök á hefðbundnum stíl en fer einnig ótroðnar slóðir í kveðskap sínum.

Upplýsingar

Dagsetn:
05/06/2016
Tími:
16:00 - 17:00
Tök Viðburður:
, , , ,

Skipuleggjandi

Dimma Útgáfa

Staðsetning

Hljóðberg