Hleð Viðburðir

Þann 28. mars næstkomandi verður boðið upp á notalega vortóna í Hannesarholti.
Flytjendur kvöldsins er dúóið Kristína Mekkin og Alexander Grybos.

Kristína er lærður dansari og hæfileikarík söngkona sem hefur komið fram víða og bjó m.a. í London og New York, þar sem djassinn seytlaðist inn í vitundina og náði sér rótfestu í sálinni. Á undanförnum árum hefur tónlistin verið í fyrirrúmi og nú er hún lent aftur á klakanum til að ylja í okkur sálartetrið eftir veturinn.

Alexander Grybos er ungur og efnilegur gítarleikari sem hefur tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum með hinum ýmsu hljómsveitum og tónlistarfólki bæði hér á landi og erlendis þ.m.t. í Póllandi og New York. Síðasta sumar spreytti hann sig í djass með HAG tríóinu sem spilaði víða um land síðasta sumar.

Leiðir þeirra Kristínu og Alexanders lágu saman haustið 2024 þegar þau byrjuðu að halda innilega djass tónleika á vínbar í miðbæ Reykjavíkur.

Fjölbreytileiki djassins er það sem heillaði þau bæði, enda er takturinn reglubundin óreiða sem býður upp á bæði hjartnæm augnablik eða ævintýralegar sveiflur.
Bragur kvöldins verður í meðalhófum takti þar sem hlýjir straumar vorsins fá að læðast inn með ábreiðum af allskyns toga með djass ívafi.

Textagerð: Anný Tinna Aubertsdóttir

Upplýsingar

Dagsetn:
28. mars
Tími:
20:00 - 21:30
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map