Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-2024 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð í dag, 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með mér þar til heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum, viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, þar til hún lést 11.júlí síðastliðinn. Frítt er inná Syngjum saman í minningu hennar í vetur, textar á tjaldi og allir geta sungið með. Allar kynslóðir velkomnar.

Syngjum saman verður haldið eftirfarandi laugardaga kl.14 á haustönn:

30.september Systur

14.október Pálmar Ólason og Magnea Tómasdóttir

28.október Harpa Þorvaldsdóttir

11.nóvember Skotfjelagið

25.nóvember Domus vox félagar

9.desember. Þráinn Árni Baldvinsson