Afmælisveisla Hannesarholts og Flóru veisluþjónustu
8. febrúar @ 18:30 - 20:30
11.ára Amælispartý Hannesarholts.
Matreiðslumeistararnir og eigendur Flóru veisluþjónustu, þeir Sigurjón Bragi Geirsson og Sindri Guðbrandur Sigurðsson töfra fram margrétta afmælisveislu Hannesarholts fimmtudaginn 8.febrúar 2024 kl.18.30.
Þeir félagar eru mjög færir í sínu fagi og hafa unnið til fjölmargra verðlauna.
Matseðill
Pinni með Fordrykk
Vatnsdeigsbolla, reykt ýsusalat, sýrður laukur, kartöflur og epli
Ristað eggjabrauð, stökkt blómkál, ostakrem og parmesan
Reykt bleikja, pönnukaka, wasabi-rjómi og granatepli
Forréttur
Hægeldaður lax með yuzugeli, epla-og hnúðkálsbitum, radísum, graslauk, ásamt dilli og sítrónuconfit.
Milliréttur
Íslenskir tómatar, yuzu krem, basil og tómatseyði.
Aðalréttur
Nautaulund með confitkartöflu ásamt kartöflumús, fylltum sveppi með lauksultu, grænum aspas og púrtvínssósu.
Eftirréttur.
Tiramizu ala Flóra Veisluþjónusta.
Verð 12.900. Miðar á tix.is