
Anna Magga & Sigurhjörtur
28. maí @ 20:00 - 21:30
Leik- og söngkonan Anna Magga og píanóleikarinn Sigurhjörtur Pálmason halda tónleika í Hannesarholti fimmtudaginn 28. maí kl. 20:30.
Á efnisskránni verður fjölbreytt úrval laga – íslensk og erlend, ásamt lögum sem Anna Magga hefur samið sjálf. Flutt verða lög í
persónulegum og hlýlegum útsetningum fyrir rödd og píanó.
persónulegum og hlýlegum útsetningum fyrir rödd og píanó.
Tónleikarnir bjóða upp á notalega kvöldstund í fallegu umhverfi Hannesarholts þar sem tónlist og frásögn fléttast saman.



