Syngjum saman – Sigríður Thorlacius og Hjörtur Ingvi Jóhannson
14/02/2016 @ 15:00
| kr.1000Sunnudaginn 14. febrúar munu Sigríður Thorlacius og Hjörtur Ingvi Jóhannsons stýra söngstund í Hljóðbergi. Sigríður leiðir sönginn og Hjörtur Ingvi leikur undir á flygilinn. Textar birtast á skjá til upprifjunar.
Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks. Veitingahúsið verður opið á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.
Hér má sjá myndband frá fyrstu söngstundinni: http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4
Aðgangseyrir kr. 1.000 – börn fá frítt inn í fylgd með fullorðnum.