Boðað er til aðalfundar félagsins þann 2. janúar kl. 17 í Hannesarholti, Grundarstíg 10.
Vakin er athygli á að framboð til stjórnar skulu hafa borist með minnst sjö daga fyrirvara og að tillögur sem leggja á fyrir aðalfund skulu hafa borist stjórn eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Rétt til setu á aðalfundi hafa félagsmenn hollvina Hannesarholts
Dagskrá fundarinns er sem hér segir;
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
- Framlagning ársreikninga til umræðu og samþykktar – Ákvörðun félagsgjalds
- Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins
- Aðrar tillögur rétt fram bornar
- Kosning formanns og átta meðstjórnenda
- Kosning tveggja skoðunarmanna
- Önnur mál
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og óskum ykkur öllum
Gleðilegra Jóla