2026-11-29T00:00:00+00:00
  • Bókmenntaspjall – Gunnar Theodór Eggertsson

    Hljóðberg

    Gunnar Theodór Eggertsson spjallar um dýrasögur og barnabækur og fantasíur og hvað annað sem kemur upp í hugann í bókmenntaspjalli. Hann varði nýlega doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði, sem nefnist Eiginleg dýr: Athuganir á veröldum dýra í tungumáli, menningu og sagnahefð, eða Literal Animals: An Exploration of Animal Worlds through Language, Culture and Narrative, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.
    Gunnar hefur einnig skrifað nokkrar bækur fyrir börn og ungmenni og hlaut m.a. Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Steindýrin árið 2008 og tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Drauga-Dísu árið 2015.
    Vegan súpa og heimabakað brauð í boði frá kl.18.30 á kr.2150. Borðapantanir í síma 511-1904.

    $1500
  • Airwaves – Off-Venue dagskrá

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík

    KÍTÓN félag kvenna í tónlist blæs til Off venue Iceland Airwaves tónlistarveislu í Hannesarholti. Fram koma tónlistarkonur úr öllum áttum og mun dagskráin endurspegla fjölbreytileika tónlistarkvenna á Íslandi.

  • Sagnakvöld

    Sagnameistarinn Einar Kárason deilir með gestum sögum í gamni og [...]

    $1500
  • Jólaveisla með Harold Burr

    Hljóðberg

    Jólaplatti og lifandi tónlist í Hljóðbergi fimmtudagskvöldið 1.desember með Harold [...]

    $10900
  • Kvöldstund með Sigríði Snævarr

    Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

    Kvöldstund með Sigríði Ásdísi Snævarr. Sigríður varð fyrst íslenskra kvenna til að vera skipuð sendiherra. Var það árið 1991 á miklum umbrotatímum. Hún hefur starfað víða um heim sem diplómat síðan 1978, hóf starfsferilinn í Sovétríkjunum og var síðast erlendis sem sendiherra í París. Hún er enn í utanríkisþjónustunni og vinnur með diplómötum framtíðarinnar.

    $1500
  • Upplestur rithöfunda

    Baðstofuloftið í Hannesarholti Grundarstígur 10, Reykjavík , Iceland

    Rithöfundar lesa úr bókum sínum
    Sannkölluð jólastemmning verður sunnudaginn 11. desember í Hannesarholti en þá munu valinkunnir rithöfundar lesa úr verkum sínum. Tilvalið að mæta með ullarband og prjóna og hlusta á upplestur á Baðstofulofinu í Hannesarholti. Kaffihúsið verður að sjálfsögðu einnig opið.

  • Jólahugvekja Þráins – Sungið saman

    Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

    Jólahugvekja Þráins Í liðlega klukkustund ætlar Þráinn Árni Baldvinsson, tónlistarkennari [...]

    $1000
Go to Top