Viðburðir for 26/04/2018
GJÚGG Í BLÓM (PEEKABOO) EFTIR GEORG DOUGLAS
Georg Douglas opnar málverkasýningu í Hannesarholti fimmtudaginn 1. mars kl.16, [...]
HILMAR HAFSTEIN SVAVARSSON
Hilmar Hafstein Svavarsson opnar sýningu á myndverkum í veitingastofum Hannesarholts [...]
Kvöldstund með Kristínu Eiríks og Gunnari Þorra
Kvöldstund með Kristínu Eiríks, sem deilir með gestum hugsunum sínum og draumum, segir frá áhrifavöldum og leiðinni sem leiddi til rithöfundaferils. Gunnar Þorri Pétursson, bókmenntafræðingur og þýðandi, stjórnar umræðum.
Sögur hennar og ljóð hafa verið þýdd yfir á dönsku, þýsku og ensku. Kristín hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir ljóðabókina KOK árið 2014, og Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt sem kom út árið 2017.
