2025-12-17T00:00:00+00:00
  • Syngjum saman

    Hljóðberg

    Samsöngur í Hannesarholti er reglulegur viðburður. Sigurkarl Stefánsson stjórnar samsöng í klukkustund og leikur með á píanó af alkunnri snilld. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir.

    kr.1000
  • Félag íslenskra fræða

    Hljóðberg

    Höskuldur Þráinsson: Hvað getum við lært um íslensku af Vestur-Íslendingum?

  • Davíðsljóð – Rödd konunnar

    Valgerður H.Bjarnadóttir heldur áfram umfjöllun um höfundarverk Davíðs Stefánssonar. Að þessu sinni fær rödd konunnar í ljóðum Davíðs að hljóma.

    kr.1500
  • Heilsuspjall – Hystería, er hún til?

    Hljóðberg

    Heilsuspjall með Finnboga Jakobssyni taugalækni og Þóru Andrésdóttur sjúkraþjálfara, sem gefa innsýn í þann sjúkdómsheim sem áður var kenndur við hysteríu en er í dag flokkaður undir heitinu starfræn einkenni frá taugakerfinu.

    kr.1000
  • Kvöldstund með Helgu Þórarins

    Hljóðberg

    Kvöldstund með Helgu Þórarins sem þenur tónlistartaugina og býður gestum með sér á innra flakk um lendur tónlistarinnar.

    kr.1000
  • „Á vængjum söngsins“ Diddú og Anna Guðný

    Hljóðberg

    Notalegt laugardagssíðdegi með söngspili vinkvennanna Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur. Kristín Þorkelsdóttir sýnir pastelmyndir sem hún hefur unnið nýlega af Diddú.

    kr.2500
  • Bókakaffi – Ingibjörg Hjartardóttir

    Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

    Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur fjallar um skáldsögur sínar fjórar í óformlegu bókaspjalli í veitingastofum Hannesarholts. Viðburðurinn er öllum opin og er aðgangur ókeypis svo lengi sem húsrúm leyfir.

  • Kvöldstund með Halldóri Haralds og Jónasi Sen

    Hljóðberg

    Halldór Haralds og Jónas Sen spjalla við gesti um lífið og listina, leika stutt píanóverk og sýna myndefni á skjá. Húsið opnar klukkan 18.30 fyrir gesti sem vilja gæða sér á léttum kvöldverði áður en spjallið hefst. Athugið að panta þarf borð með því að hringja í síma 511-1904 eða senda tölvupóst á hannesarholt@hannesarholt.is

    kr.1000
Go to Top