2025-12-21T00:00:00+00:00
  • Tónleikar – Gestur frá gamla landinu

    Hljóðberg

    Björg Brjánsdóttir flautuleikari og Tina Margareta Nilssen píanóleikari ásamt Stine Aarønes fiðluleikara og Brjáni Ingasyni fagottleikara flytja verk eftir Beethoven, Grieg, Brahms og Sjostakovitsj á notalegum tónleikum í Hljóðbergi laugardaginn 11. febrúar.

    kr.2000
  • Dúó tónleikar fyrir selló og píanó

    Hljóðberg

    Gunnar Kvaran og Domenico Codispoti leika saman á dúó-tónleikum fyrir selló og píanó verk eftir Brahms, Schumann, Rachmaninoff og Shostakovich. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir tónlistarmenn leika saman opinberlega.

    kr.3000
  • Kvöld í París – tónleikar

    Hljóðberg

    Einar Bjartur Egilsson píanóleikari og Nadia Monczak fiðluleikari flytja rómantísk fyrir fiðlu og píanó. Miðasala á midi.is

    kr.2500
  • UPPSELT – Kvöldstund með Helenu Eyjólfs

    Hljóðberg Grundarstígur 10, Reykjavík

    Kvöldstund með okkar ástsælu Helenu Eyjólfs, sem fagnaði 75 ára afmæli sínu fyrir skemmstu. Karl Olgeirsson og Jón Rafnsson verða henni til fulltingis þetta kvöld.

    kr.3000
  • „Soul’d out“ – Harold Burr

    Hljóðberg

    Í tilefni af því að febrúarmánuður er jafnan tileinkaður sögu blökkumanna í Bandaríkjunum býður Harold E.Burr til kvöldstundar þar sem hann fer yfir sögu sálartónlistar í tali og tónum.

    kr.3000
  • Töfrar náttúrunnar – vatnslitamyndir

    Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

    Sýningaropnun laugardaginn 25. febrúar kl. 15 Marta Ólafsdóttir líffræðingur heldur sína fyrstu einkasýningu í Hannesarholti. Síbreytileg náttúra er yrkisefnið.

  • Syngjum saman

    Hljóðberg Grundarstígur 10, Reykjavík

    Bræðrasynirnir Jóhann Vilhjálmsson og Gunnar Kr. Sigurjónsson stjórna fjöldasöng fyrir almenning.að þessu sinni. Börn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr.

    kr.1000
  • Bókakaffi með Ásdísi Thoroddssen

    Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

    Gestir geta notið veitinga á kaffihúsinu á meðan Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður segir frá og les uppúr fyrstu skáldsögu sinni, Utan þjónustusvæðis, sem kom út fyrir síðustu jól.

Go to Top