Hleð Viðburðir

Hljómsveitin BREK heldur tónleika í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 24.maí kl.20:30.

Brek gaf út sín fyrstu lög í febrúar 2020 og hefur ekki slegið slöku við síðan.

Akústísk tónlist sveitarinnar sækir áhrif víða að m.a. úr íslenskum þjóðlagaarfi, skandinavískri og bandarískri tónlist, jazzi og fleiru. Áhersla er lögð á vandaða íslenska texta en jafnframt að skapa stemningu sem er grípandi og þægileg en þó krefjandi á köflum.

Í tilefni af útkomu stuttskífu þann 19. júní sem inniheldur fjögur ný lög ætlar hljómsveitin að fagna því með fallegum tónleikum í Hannesarholti miðvikudaginn 24. júní kl. 20:30.

Upplýsingar

Dagsetn:
24/07/2020
Tími:
20:30 - 22:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904